blettur til framfara fyrir gomlu og dýrið

1.26.2005

status q

Annar ljomandi dagur! allt gekk vel med kennarann og held ad vid seum bara i godum malum :)

aaaa det er så hyggeligt

Tetta var alger snilld! Lærdi alveg helling og er miklu øruggari nuna med tad sem eg er ad gera! Tarna var allra tjoda kvikindi og tar af leidandi endalaust mikid af skrytnum malum sem var farid yfir og tæklad. Sem betur fer voru skotar a stadnum tannig ad sjalfsogdu smullum vid i tím! bara skemmtilegt! Vandrædaheimilid var rosa fint.. var i 2 manna herbergi tannig eg get ekki sagt annad en tad hafi verid ljuft ad sofa med 2 sængur i tessum kulda :) Kom svo seinnipart i gær til kbh.. hitti gudny mørtu a kaffi norde... madur verdur alltaf amk ad fara tangad einu sinni tratt fyrir hvad tad er dyrt... tad eru svoooo sætir strakar ad vinna tarna ad tad er med olikindum!!! mmmmm :) skaludum fyrir nyju vinnunni hennar i flottu budinni... ekki leidilegt tad!!! Var svo hja susan og poul i gærkv fram a nott.. ædi.. tad er alltaf svo huggulegt ad vera hja teim og tau eru bara svo yndisleg... jæja.. er ad fara ad hitta selmu i lunch og svo er tad kennarinn kl 3!! allir ad krossa fingur fyrir uppkastinu sem eg sendi honum... tad væri ljuft ad fa tad samtykkt svo eg færi ad dr*****ast til ad klara tettaa:) indtil nexte gang!!!!

1.23.2005

København

3 timar af svefni og svo af stad! Tradi sængina mina i fluginnu en vard ad lata teppi, trefil og flispeysu duga... var svo rosalega kalt!!! langadi mest ad hnoda mer utanum stelpuna sem sat vid hlidina a mer... huna var eitthvad svo heit-leg en kanski ekki videigandi! En mikid hefdi eg viljad lata pakka mer i vetrargalla og vera latin uti vagn a tessarri stundu!! Tad er Svo gott ad vera komin hingad til køben aftur :) tad er eitthvad svo notalegt vid tad! For i midbæinn um midjan dag og hitti atla. Komum okkur fyrir a notalegu kaffihusi a pilustræti og hofdum tad huggulegt a medan vid dældum i okkur mat og drikk og sjolludum upp sidustu 6 manudi fra tvi vid hittumst sidast :) og og ú ú frettir!! hann er ad flytja heim!!! og tad bara a tridjudaginn.. skyndi skyndi akvørdun!! Tad var svo ædislegt ad labba svo upp stikid a leidinni heim, snjokoma og kalt og allt eitthvad svo .... æji bara gott :) Eg hef sennilega verid eitthvad russaleg i øllum tessum føtum.. og ad visu med russahufuna.... tad stoppadi mig midaldra kona og spjalladi heillengi rólega vid mig a russnesku.... reyndi ad segja henni ad eg skyldi ekki baun a ensku... svo a heimatilbunu taknmali med tilheyrandi handahreyfingum... tad var ekkert ad stoppa konuna i spjallinu!!!..... eina sem eg skyldi var erotica museum!!! giskadi a ad tad væri afangastadurinn , tannig eg teiknadi kort a næsta glugga og hvert hun ætti ad fara til ad svala físn sinni... Ta vard hun afskaplega glød og tritladi afram :/ Hafdi bara tekid um 20 skref tegar næsta kona vatt ser ad mer og spurdi mig hvort eg hafi nokkurn timan tekid stress prof!!!! hva sest tetta langar leidir ? eg sagdi bara no hablo dansk og helt afram ad njota min tarna a røltinu. Tratt fyrir ad vera merkilega attavilt af landfrædingi ad vera ta ratadi eg heim uppi vanløse. Tvilikt luxus lif tetta er.. er ad dunda mer i tølvunni a medan tad er verid ad gera heimatilbuid pasta i eldhusinu og hvitvinid er ad kolna... Fer svo i fyrramalid til Roskilde... verd rosalega svekkt ef eg fæ ekki gefins bol.. tølum nu ekki um ef tad verdur væld og tad verdur kanski taska i tetta skiptid... ta fyrst verdur hægt ad nørrast! Tad er engin meiri nørri en sa sem er i of stuttum gallabuxum og gefins-bol fra sidasta namskeidi eda radstefnu... tølum nu ekki um ef allt er girt ofani og reyrt med rokna belti!!! umrædan orin of heit fyrir tig??????? ja puff ... hættum adur en allt verdur kreisy....... Fjørid byrjar kl 9 i fyrramalid tannig madur verdur ad koma ser snemma af stad. Ætla mer sidan ad gista a vandrædarheimili næstu nott. Tad verdur gaman ad tølta um tarna.. tetta er svo kruttlegur bær. Tad verdur frodlegt ad sja hvernig tetta fer !!

1.21.2005

Skeleton people, töfrateppi og orkuleysi

jæja beibí.. lét verða af þvi í gær að fara í dungidungi timan sem eg er búin að vera á leiðinni í í uþb eitt og hálf ár. Þetta er svo mögnuð upplifun. Nú er ég sannfærð um að töfrateppið hans alladín er/var til. ég lá amk á fjarskyldum ættingja þess í gær og fann greinilega fyrir kröftum þess! Eftir skass í gær var slökkt á mér og eg hef ekki orðið að neinu gagni síðan þá! mest megnis verið að fylgjast með öðrum framkvæma hlutina og verið að dútla mér við hin ýmsu smáverk sem hafa afskaplega lítin og ómerkilegan tilgang. Svo virðist sem orkan hafi yfrgefið mig og farið í heilsuspa til uppherslu og eflingar, trúi þvi að það sé væntanlegt seinniparinn.
Búin að hóa saman í matargleði í kvöld.. sem er mest ljómandi skemmtilegt... planið er að vera svo dugleg í iðnaðarmannagerfinu á morgun (ætti að fá mér svona gallaskyrtu, gallabuxur, hjálm... svona eins og hrikalega cool gæinn í W M C A!!!!!.. stebba gæti verið indjáninn og snorri gæinn í leðurbuxunum!!! eeehhh !!!! , svo er það koben á sunnudaginn... aaa ljúft... kem með diet coke... en engar væntingar.. við gerum okkur báðar full grein fyrir þvi að klukkan verður ókristileg þegar ferðatími á sér stað og þvi ekki hægt að veita loforð vegna margra frávika sem eiga sér stað á þessum tiltekna tima!
Annars svona í lokin þá hefur þessi linkur veitt mér ómælda ánægju í dag ..
http://www.theonion.com/news/index.php?issue=4052&n=1&id=3964

1.19.2005


Kætandi  Posted by Hello

Grímur er á leiðinni!

Það er að fjölga í litlu fjölskyldunni minni !!! :) Hann heitir Steingrímur Bjarki! Hann ætlar að flytja til okkar þegar við erum búnar að koma okkur fyrir:) Vonum bara að hann aðlagist þessu knús og kjams heimilishaldi :)


fra gangi.. framtíðar eldhús vinstra megin og stofa hægra megin!!!  Posted by Hello


Getur ekki verið verra!  Posted by Hello


Gatið komið og buið að múra  Posted by Hello

Án hugsunar

Net veruleika fyrrt þegar ég klæddi mig í morgun! Hef verið helsti talsmaður hlýrra fata .. allt er gott sem er heitt!! ... og læt pæjuskapin alltaf fjúka fyrir mína heitt elskuðu dúnulpu en ekki í dag! Einhverra hluta vegna endaði ég í frímerki og einhverjum smátitlum... ég meina það er alveg 4 stiga frost og snjór og vindur og að öllum líkindum veðrið andsetið þessa daganna!!!!!! því get eg ekkert borið fyrir mig nema fyrningu!

1.18.2005

Í hvað ætlaru að nota hann vinan????????

Ég á ekki marga svona pirringspunkta er eiginlega alltaf nokk sama! EN... ja nú kemur að þvi! Get ómögulega setið á pirring þegar kona er kölluð vinan! Er búin að eiga lærdómsríkan klukkutima í samskiptum við karlmenn sem vinna í gólfefnadeildum og á áhaldsleigum.. og veit merkilega nokk all mikið um undirlög fyrir parket og fræsara eins og er! (mikil hætta á gleymsku í þessum minnisflokk) .... back to the point! Hvað er málið með þessa karla og samskipti þeirra við konur og vingjarnlega tónin í að kalla mann vinan.... jæ´ja... þá er sá pirringur búin og eftir stendur að mér er nokk sama aftur...

Vöntun á ís og dugleg kona

Sænskut jazz komin á fóninn og dagurinn er byrjaður. Sem sagt búin að fá mér kaffi og bara tiltölulega vakandi miðað við hversu ókristilegur tímin er! Ég hef ekki verið fylgjandi eða trúað á líf fyrir hádegi en þetta virðist vera að breytast með aldrinum!!!! Gaman að segja frá þvi að Niðurrif er að verða búið og uppbygging er hafin í drottningarhöllinni! Gengur alveg ljómandi enda hef ég fengið ómetanlega hjálp! takk takk takk takk takk takk!!!!!!!!!
Planið fyrir daginn er að halda fyrirlestur eftir hálftíma eða svo.. vinna í ritgerðinni fram á dag.. trítla mér í bykó og kaupa baðkar og parket og leigja fræsara! já kæru börn maður er engin venjulegur iðnaðarmaður:) Svo áður en iðnaðardýrið brýst fram í kvöld á að sjálfsögðu að fara í skvass og reyna að vinna í þetta skiptið!!!! Dugleg kona :) aaaammmm svo í öllu þessu býð ég alveg eftir að geta átt kvöld með ís og mynd og bara að hugga sér!! hlakka til :)

1.13.2005

Hálft snapp en annars bara í góð

Íbúðin er orðin tóm.. Kom fullt af fólki í gær og við hentum öllu út á kerru... nú eru bara svona 2 dagar eftir í niðurrifi áður en uppbygging getur hafist!! Svo kætandi!!!! Loksins fórum við beyglurnar í skvass í gær.. eftir 2 vikna pásu og sökuðar að minni hálfu eftir hinni beyglunni minni! Það var ekkert smá gott og gaman... fékk helling af karlhormónaköstum og tapaði öllum leikjum nema einum... Mest ljómandi losun á orku!! Gengur bara fínt að klára ritgerðar uppkastið... með meðfylgjandi njálgi að sjálfsögðu.. en það telst víst eðlilegt innan gæsalappa. Og.. ú ú ú!!! Var að fá nýtt lyklaborð :) komin með svona beygluborð ! sem sagt svona natural ! Það er hrikalega flott og mest ljomandi að skrifa á það!! Annars hef ég komist að þeirri niðurstöðu í dag að veðrið hlítur að vera andsetið! Það er svo kalt að þetta er ekki nokkurri konu bjóðandi. Fór á miðbæjarrölt í hádeginu og tók út stressið sem var alveg að fara að hellast yfir mig.... gott að skipta um umhverfi í smá tíma....
Svo fyrir ykkur sem hafa endalausan áhuga á vindmyllum og möguleikum þeirra að eiga líf hér á landi þá eru gögnin min komin á netið http://os.is/page/gagnavefsja þekjan heitir vindatlas, zooma þarf að mælinum sem er merktur. ýta svo á i takkann vinsra megin og smella á stöðina. þá byrtist uppl dálkur fyrir neðan... síðan undir stöðvarnúmerinu eru htlm síður með upp.. reglulega kætandi og skemmtilegt ;)
Annars er ofvirki iðnaðarmaðurinn enn laus og stendur sig eins og við mátti búast... allt er að gerast og hann er svakalega ánægður :P

1.12.2005

Hjálp ? JA TAKK !!!!!!! :)

Eins og þið sjáið þá er búið að gera hana hálf fokhelda og hellings vinna framundan... þannig mínir kæru!!!! öll hjálp er hjartanlega velkomin og vel þegin!!!!
Annars verð ég að segja ykkur frá vinnustaðaskemmtun morgunsins! Það er helíumkútur í kjallaranum!! .... jú jú... það var ég að gera í morgunsárið... magnað hvað þetta er alltaf fyndið!!!


Svo loks eldhús :/ Posted by Hello


Baðherbergi!!  Posted by Hello


stofan :P Posted by Hello

1.11.2005

Geysp

Lesturinn er hafinn... fyrirlestur á þriðjudaginn og hinn mánudag á að presentera 3-4 scenario um potential staði ásamt fylgifiskum og tilheyrandi vandamálum... og svo skil á sama tíma á ritgerðinni um ritgerðina.... Merkilegt að maður helst aldrei í æfingu með þetta.. lesturinn það er að segja... Fljótlega eftir að hann er byrjaður þá byjar GEYSP.. svo meira Geysp svo vantar manni eitthvað að borða...... helst eitthvað vel sætt..... svo kaffi... smá tónlist... og svo vantar mann að vesenast í öllu nema að sitja kjurr!!! Þetta byrjar alltaf svona.. svo þróast þetta uppí að maður getur komið einhverju í verk.. Maður þroskast ekkert í þessarri atburðarrás... alltaf sami hringurinn... Er einmitt á tónlistarkaflanum nuna... ákvað að hafa það danskt að þessu sinni og er með Tim Christiansen :)

Bara dugleg

Búið að rífa teppi, dúka og eldhúsinréttingu út... skot gengur enda ekki skortur á ofvirkni í familiunni! Get ekki sagt að það sé sérstaklega góð lykt inni íbúðinni né að það sé fagurt um að lýtast.l. en þetta getur bara orðið betra héðan af!! Vildi að sólarhringurinn væri lengri... það er svo mikið að gera á svo mörgum stöðum.... nú verður konan að passa sig að halda jafnvægi og fara ekki á yfirsnúning!!!! Það þarf að minna konuna á alltaf annað slagið að þó hún geti allt þá getur hún kanski ekki gert allt á sama tíma! .... hei svo eitt skemmtilegt í viðbót :) ég er sennilega að fara til köben eftir 2 vikur eða svo :) finnst það óendalega skemmtilegt :) Var búin að skrifa heil-langan lista um hvað eg þyrfti að gera áður en sá unaður að fara til köben rinni upp... en þá fór eg í hálfgerðan panikk yfir tímaleysi og ákvað að taka bara einn dag fyrir í einu.... erfitt stundum að vera ofvirkur og vera að læra það að róa sig :)

1.09.2005

Byrjuð

Búin að fá íbúðna og ofvirknin fékk að njóta sín þar í dag. Endalaust dugleg :) Þannig elskurnar mínar! Verið velkomin í kaffi og spjall :) aaaa þetta er svo gaman ....

1.07.2005

Skíði, pönnukökur, steinar og tímaraðir

Jæja gott fólk, það er föstudagur og eg er að telja min til að geta komið mér út. Ég er búin að vera að leiðrétta tímaraðir í allan dag og gjörsamlega að drepast úr leiðindum! Engin hefur verið málglaður á msn í dag og síminn minn hefir ekki hringt þannig það verður sennilega að skafa mig uppúr þessum stól vegna bráðnunar af leiðindum. Fór að vísu ímjög skemmtilegan hádegismat... en samanlagður tími síðan ég kom til baka hefur verið svo þreytandi (2 klst og 19 min) að það er eins og timin hefur staðið í stað. Tilraunir hafa samt staðið yfir síðan kl 8:02 í morgun við að gera þetta allt eins skemmtilegt og á er kosið. Tónlistinn er búin að vera í botni í eyrunum í allan dag... búin að fara í gegnum marga marfa diska.. hlustaði smá tíma á útvarpstöðina voice í köben :) alltaf gaman að dönsu hipp hoppi og rappi!!! kætir og hressir :P en ekki í stuði fyrir sænska slagara í dag! þannig engin sænskur Bó eða Lísa Ekhdal.. nuna er það svo portishead... takk aftur stebbinn minn!! Aftur á móti er lífið eftir kl 1600 bara skemmtilegt.. stefnan verður tekin á spa stöð og beint í pottinn... því næst bíður mín steinanudd... amm aldrei farið svoleiðis áður en það eru væntingar um unað. Dýrið gaf mér þetta í jólagjöf... endalaust mikið krútt þessi mús sem ég á :) Núna eru bara 3 dagar í íbúðinna ... djöfull hlakka ég til! ég á eftir að vera skemmtilegust á næstu vikum... alltaf að hringja og ath hvað þið eruð að gera.. hvort allir eru ekki í stuði til að mála og skrapa!!!! Er að spá í að tæla ykkur með pönnukökum!!! AAAHHH ja börnin´góð maður leynir á sér!!!!!
Langar svo að fara á skíði á morgun.. heyrði það að það væri fint færi !! Hefur maður samvisku til að stinga af og skíða??Eða á maður ekki að nota tíman og fara í íbúðar-tækja-leit.. eða taka niður jólinn? Ég er sennilega búin að búa of lengi þar sem ég bý núna... það er næstum búið að jarða kæruleysið mitt..... Verð að ná mér í svoleiðis aftur

Skiptir miklu máli

Tók Ingu mér til fyrirmyndar og skráði mig sem styrktarforeldri barns í Uganda. hvet ykkur til að velta því fyrir ykkur í hvað peningarnir ykkar eru að fara í..... ef til vill gætir þú líka séð af 2000 krónum á mánuði? Fyrir þá litlu upphæð getur þú veitt barni læknisaðstoð, menntun og mat! http://www.abc.is/

Starfið veitir nauðstöddum börnum varanlega hjálp.
Starfið erlendis er rekið í samvinnu við kristna heimamenn á hverjum stað. Starfið gengur út á það að veita munaðarlausum, fátækum og umkomulausum börnum varanlega hjálp í formi skólagöngu, læknishjálpar og heimila þar sem þörf er á auk fæðis og klæða.

Starfið skiptist í tvo þætti:
1. Menntun, umönnun og framfærslu þurfandi barna.
2. Byggingu heimila og skóla til að geta veitt börnunum þá hjálp sem þau þarfnast.

1.06.2005

Sænskur Bo og vangaveltur

Tók mandarínu kassann með mér i vinnuna *:) hefur veitt mér endalausa ánægju þar sem af er af degi :) Ég var spurð að því í gær hvort ég væri alltaf að borða... ég þvertók fyrir það... en það hefur nú samt sem áður átt vel við mig í dag... ég hef verið eins og osmósa á kassanum... Nýjasta nýtt er Bo Kaspers Orkester og Koop.. sænskt jazz beibí ......Allehobba , la de swinge og det hele.....hhmm hljómar ekki kanski en eg er alveg að fíla þetta í tætlur... held bara að það sé út af því þetta er sænskt og þar af leiðandi skrýtið!!! ... thja.. Fyrsti heimilistækja leiðangurinn er afstaðinn. Langaði helst bara að drífa þetta af og kaupa allt á fyrsta staðnum... ég veit nefnilega að þegar ég er búin að fara á alla hina staðina þá kaupi ég það fyrsta sem eg sá..! er það ekki alltaf svoleiðis? Er það ekki bara tima og þolimæðis-eyðing að fara á milli verslanna? Segjum sem svo að við myndum verðleggja tíman og þolimæðinna. þá er tekið í púkkið aksturinn á milli staða, biðraðir, bið á hinum ýmsu stöðum, skortur á þolimæði , ef til vill smá pirringur og skoðun á tækjum! Gæti ég ekki bara keypt það dýrasta í fyrstu búðinni.. og samt grætt? aaahh hér kemur kanski ástæðan fyrir þvi að ég vinn við gangagrunna en ekki á viðskiptasviðinnu.... ???..... veitiggi

1.05.2005

Vinnustaðurinn rokkar

Borðaði yfir mig af grjónagraut í hádeginu! Vildi svo sannalega að einhver ykkar hefði setið þarna með mér. Svo skemmtilegar umræður við borðið!! Vissuð þið að sólskinsstundir í Reykjavík mældust aðeins 1,3 og er það tæpum 11 stundum minna en í meðalári. Sólskinsstundir hafa nokkrum sinnum verið álíka fáar í Reykjavík í desember, síðast 1992. Og ekki sást til sólar á Akureyri enda ekki von á þessum árstíma ha ha ha ha hhhmmmm!!! Meðalhiti í Reykjavík var -0,2 stig og er það í meðallagi, en -1,5 stig á Akureyri og er það 0,4 stigum ofan meðallags. Í Akurnesi var meðalhitinn-0,7 stig og -6,6 stig á Hveravöllum. ........og svo í lokin til að kæta alla uppúr skónum úrkoma í Reykjavík mældist 86 mm og er það tæpum 10% yfir meðallagi........ jæja börnin góð...Gaman að því!!!!!

Pappakassinn og dungí dungí lögunar-aðferðir

Viðgerðir á pappakassanum mér standa enn yfir. Fór í gær jurta apotekið! hhmm Gamla móttækileg fyrir öllu og konunni tókst að selja mér hafra duft og olíu sem ég átti að úða yfir mig og koddann minn! Trillaði mér í gymmið og lá meðvitundarlaus í pottinum á eftir.. bara unaður!... Eftir minn skammt af ruv og skjá einum og orðin græn eftir daginn var komin timi til að hakka í mig þvi sem ég keypti í apótekinu. Byrjum á þvi verra! Hafrar í duft formi.. hrærðir út í volgt vatn...hhmmm fyrsti sopin var alls ekki sem verstur en OMG hvað þetta er ógeðslegt á þriðjasopa... kom þessu oní mig með herkjum og viðbjóði.. allti í þeirri trú að þetta væri svo hollt og gott fyrir mig!!!!... svo seinna trikkið sem eg borgaði lika fyrir.... Olían..Angaði eins og apotekið þegar ég fór að sofa :( damn hvað það var vond lykt af mér! En hörmungarnar stóðu nú yfir bara í stutta stund þvi það leið fljótlega yfir gömlu enda ekki annað í boði þegar koddi og sæng er nálægt. Þar sem allt þarf að gerast strax hjá mér þá bjóst ég að sjálfsögðu við að vakna bakverkjalaus í morgun!!!!! Auðvita!! ég meina.. úða á mig ólyktandi, drekk hafradrykk og borga fyrir það!!!! en nei mei.. sami pappakassinn í dag!

1.04.2005

Útgerðarfélagið

Það voru lögð drög að útgerðarfélaginu í haust og nú er komið að því! Stefnt er á stofnfund um helgina. Meðlimir eru um 12 og það á eftir að finna almennilegt nafn á útgerðarfélagið. Það er búið að taka smá forskot á sælunna og ákveða að fara amk í 3 litlar ár og svo eru 2 stórar eru innan gæsalappa. Það er amk komið boð um eina góða og í staðin ætlum við að sleppa dölunum þetta árið. Það er að vísu svoldið svekkjandi þetta er orðin svo fastur punktur að vera þar um versl. mannahelgina en þar sem áin hefur ekkert gefið undanfarin skipti hefur veiðigleiðin ekki fengið að njóta sín sem skyldi þó önnur gleði sé ríkjandi. Bara skemmtilegt :)

1.03.2005

Þriðji janúrar

Litli bróðir minn á afmæli í dag. Tuttugu ára! Til lukku!
Mætt aftur til vinnu, endalaus gleði :) Stefnt er svo á æfingu á eftir.. puff .. það á eftir að vera rosalegt.. hef ekki gert neitt í rúma viku þannig þetta eiga sennilega eftir að vera þung spor en ooo hvað það verður gott þegar maður er svo búin! Gamla er lasin þannig ég verð að fara ein til að hlaupa af mér kvoletí strítið :)

1.02.2005


Helmingurinn af genginu Posted by Hello


Dýrið og Gamla Posted by Hello

trilltur lýður

Held að við höfum verið 25 saman á gamlárskvöld. Rosalega rólegt og afslappað svona framanaf en svo breyttist þetta i hálfgert álftagerðisbræðra party eins og á afmælinu í Hveragerði í fyrra. NEMA í þetta skipti var dregin fram platan pottþétt party frá áttatíu og eitthvað.. sem var látin rúlla á meðan lýðurinn trilltist á tilbúna dansgólfinu :) Var engan vegin að nenna að fara eitthvað á tjútt.. það er bara ves að koma sér á milli á þessu kvöldi. Planið var reyndar líka að vera heima á nýársdag en endaði í óvæntu matarboði hjá sessu og bára.. og sessa lánaði mér svo rosalega mikin dundur pæju kjól að ég gat bara ekki setið á mér!!!! Skellti mér í strákaparty og endaði á nýársfagnaði með Stuðmönnum. Held reyndar að eg hafi ekki dansað eitt einasta lag... mikið að gera í spjallinnu allt kvöldið... þetta var fín skemmtun.